Græn borg

Reykjavík stefnir að kolefnishlutleysi í síðasta lagi árið 2040 með því að draga hratt úr losun og byggja upp kolefnisbindingu. Þetta felur í sér breytta framleiðslu og ferla, breytta samgöngumáta, breyttar neyslu- og matarvenjur – og auðvitað aukna endurvinnslu. Græn og vistvæn Reykjavík sem mætir áskorunum um loftslagsmál er einmitt sú borg sem við ættum að vilja skapa saman. Borg sem er í senn lifandi, skemmtileg, fjölbreytt og réttlát.
Drögum úr losun gróðurhúsalofttegunda
Grænni samgöngur, uppbygging á hringrásarhagkerfi og áhersla á vistvæn mannvirki verða í fyrirrúmi í Græna planinu. Með nýsköpun að vopni stefnum við á að draga úr myndun úrgangs og losun vegna umferðar, efla stafræna þjónustu og vistvæn innkaup.

Eflum græn svæði og kolefnisbindingu
Græn svæði og tengsl við náttúru hafa umtalsverð jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu fólks. Borgin mun bæði leggja áherslu á kolefnisbindingu, viðhald líffræðilegrar fjölbreytni og að fegra græn svæði.
