Sóknaráætlun Reykjavíkurborgar
Um græna planið
Græna planið er heildarstefna Reykjavíkurborgar sem dregur upp framtíðarsýn borgarinnar til ársins 2030 og tengir lykilstefnur og áætlanir borgarinnar við þá sýn.
Skoða samantekt um Græna planið – uppfært í júní 2022
Reykjavík Green Deal – Strategy until 2030
Framtíðarsýn Græna plansins
Lykilvíddir græna plansins eru þrjár; efnahagsleg, samfélagsleg og umhverfisleg en sjálfbærni næst ekki nema tillit sé tekið til allra þriggja þátta.
Kolefnishlutlaus borg
Reykjavík er blómleg, skemmtileg og heilbrigð borg sem verður kolefnishlutlaus árið 2040.
Grænn vöxtur
Í Reykjavík er kraftmikill grænn vöxtur, samkeppnishæft borgarsamfélag og frjósamur jarðvegur fyrir skapandi hugmyndir sem laðar fólk að til búsetu, heimsókna og athafna.
Engin skilin eftir
Reykjavík verður græna umbreytingin byggð á réttlæti, sanngirni og þátttöku. Íbúar búa við öryggi og geta haft jákvæð áhrif á eigið líf og annarra í nútíð og framtíð.
Helstu áherslur og aðgerðir í fjármálum, uppbyggingu og atvinnumálum til 2030
Samhliða framlagningu á fjárhagsáætlun 2021-2025 er lögð fram Fjármálastefna Reykjavíkurborgar til 10 ára. Stefnunni er ætlað að að styðja við Græna planið.
Fjárhagsætlun Reykjavíkurborgar 2021 og fimm ára áætlun 2021 – 2025 var lögð fram í borgarstjórn 1. desember 2020 – Skoða frétt: Sóknaráætlun í Reykjavík í skugga heimsfaraldurs.
Ávarp borgarstjóra
Borgarstjórn ákvað á fundi sínum 2. júní 2020 að unnin yrði langtímaáætlun um fjármál og fjárfestingu Reykjavíkurborgar, Græna planið, byggt á hugmyndafræðisjálfbærni, sem legði fram skýra framtíðarsýn um blómstrandi og kolefnishlutlaust borgarsamfélag þar sem allir geta fundið sér tilgang og hlutverk.
Græna planið er sóknaráætlun Reykjavíkurborgar sem dregur saman á einn stað helstu lykilverkefni og grænar fjárfestingar í borginni á komandi 10 árum.
Græna planið felur í sér skynsamleg efnahagsleg viðbrögð við hinum gríðarlega samdrætti sem leiðir af heimsfaraldri kórónaveirunnar og beinir fjárfestingu komandi ára í rétta átt. Við tökumst á við vandamálin strax en fjárfestum um leið í grænni framtíð. Næsti áratugur verður áratugur aðgerða gegn loftslagsvánni og borgin mun ekki láta sitt eftir liggja.
Græna planið varpar ljósi á þrjár víddir sjálfbærni; umhverfislega, samfélagslega og efnahagslega.
Áætlunin er unnin samhliða undirbúningi fjárhagsáætlunar vegna ársins 2021, fimm ára áætlunar 2021–2025 og vísar veginn áfram til ársins 2030.
Þróttmikið og fjölbreytt borgarhagkerfi er besta leiðin upp úr samdrætti. Á grunni Græna plansins mun Reykjavíkurborg beita sér fyrir kraftmikilli innviðafjárfestingu í víðtækri samvinnu með það fyrir augum að byggja upp borg tækifæranna. Grænar áherslur og græn skref munu á komandi árum vera leiðarljós borgarinnar á öllum sviðum. Eins og segir í sáttmála þeirra flokka sem mynda meirihluta borgarstjórnar:
Við ætlum að byggja öflugt og þétt borgarlíf fyrir okkur öll með nægu framboði af húsnæði, sjálfbærum hverfum, heilnæmu umhverfi, skilvirkum samgöngum, fjölbreyttu atvinnulífi og einfaldri, aðgengilegri og lýðræðislegri umsýslu. Við ætlum að auka lífsgæði fólks og búa til borg þar sem það er gott að vera og gera.
Græna planið byggir á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og leggur annars vegar áherslu á verkefni sem auka lífsgæði borgarbúa og hins vegar á verkefni sem búa til jarðveg fyrir atvinnugreinar framtíðarinnar sem skapa verðmæti án þess að ganga á náttúruauðlindir.
Ég vil þakka öllum sem hafa komið að mótun Græna plansins og hlakka til að vinna áfram að þróun þess í breiðu samráði svo Reykjavík blómstri sem borg tækifæranna í grænni framtíð.
Dagur B. Eggertsson
Borgarstjóri